ippa
27.06.2007 11:23:44 / ippa

Ættarmót

Var á ættarmóti á Sauðanesi um síðustu helgi.  Vel heppnað og gaman.  Gott veður, góð dagskrá og góður matur. Það verður pottþétt aftur haft ættarmót hjá "Sauðanesveldinu" á allra næstu árum.

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 10:42:45 / ippa

Allt í blóma

Nú er allt í blóma hjá mér.  Búin að fara í Hveragerði og sækja blóm og körfur.  Koma þessu öllu fyrir á svölunum.  Skipulegg "svalaskoðunarferðir" í kjölfarið.  Fullbókað í gær. 8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 21:08:45 / ippa

Ófært

Það hefur ekki gefið í Hveragerði.  Arfavitlaust veður, rok og rigning hefta för.  Það hefur þó gefið hérna niður í Blómaval við Skútuvog.  Nokkrar harðgerðar plöntur prýða svalirnar hjá mér.  Þ.e.a.s. þegar kerin eru ekki á hliðinni!  Þetta var stutt sumar!

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 22:38:28 / ippa

Blómabærinn

Nú styttis í að haldið verði í blómabæinn Hveragerði og versluð sumarblóm á svalirnar ásamt kannski nokkrum gulrófum í garðinn.  Það hefur hlýnað mikið og vonandi verður sumarið gott.:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 13:57:27 / ippa

Bloggleiði

Ég finn fyrir bloggleiða.   Hann lýsir sér með ógurlegri þreytu og sleni þegar ég hugsa um að blogga.  Ef ég sest við tölvuna lamast ég.  Þess vegna ætla ég að blogga minna framvegis enda kannski engin ástæða til að blogga ef maður hefur ekki þeim mun meiri þörf fyrir það.  Ég mun því ekki leita til læknis vegna þessara einkenna.  Ég hlakka líka svo til sumarsins og er einmitt núna að undirbúa svalirnar fyrir sumarið.

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 00:29:52 / ippa

Kjósum

Við skulum öll mæta á kjörstað í dag og kjósa.  Ég kýs Sjálfstæðisflokkinn. X-D.:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 22:39:36 / ippa

Karlakór

Skellti mér á Karlakór Reykjavíkur í kvöld með pabba.  Höfðum gaman af.  Beytti fuglatalningaaðferðinni á kórinn og niðurstaða var 68 + - 2.  Myndarlegur hópur sem heyrðist vel í.  Prógrammið gott. Blandað Íslenskt og erlent efni m.a. færeyskt sem var mjög gaman að.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 12:52:39 / ippa

GLEÐILEGT SUMAR!

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn.:haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 23:58:22 / ippa

Bögg á bloggi

Það er ógeðslegt bögg á Moggablogginu. Hef reynt nokkrum sinnum að komast inn á mitt eigið blogg þar og það gengur ekki.  Kom inn færslu en get ekki leiðrétt.  Svo er eitt alveg glatað.  Það er ekki hægt að finna neins staðar út hvert á að snúa sér til að fá skýringar:evil:.
Fer bara að sofa og athuga málið á morgun.  Hef ekki lent í svona böggi fyrr.  Góða nótt.:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 18:26:29 / ippa

Kvef

Það er kvef í gangi.  Ég er kvefuð.  Borða hvítlauk og drekk te út í eitt.  Þetta er slæmt kvef.  Hnerri og nefrennsli ásamt sárum hósta.  Bjart og stillt veður en andkalt hér syðra.

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 08:59:25 / ippa

Gleðilega páska

Óska öllum gleðilegra páska.  Veðrið er fallegt hér syðra, bjart og sól. :)
Sannkölluð páskasól. :lol:
Munum að dagurinn í dag er fyrsti dagurinn á því lífi sem við eigum eftir að lifa.  ;)
Njótum hans.:haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 20:15:15 / ippa

Góða helgi

Nú skellur á okkur ein helgin enn.  Veðrið er yndislegt og lífið gott.  Á morgun fæ ég frábærar konur að hjálpa mér að þrífa og taka til.  Þannig að ég ætti ekki að þurfa að hafa þessar sígildu áhyggjur af drasli og ryki um helgina.  Ég fer í afmæli annað kvöld og þaðan beint á árshátíð.  Var að máta pilsið og e-ð við og nota bene KOMST AÐ NIÐURSTÖÐU.  Sem er undarlegt með mig sem ákveð venjulega á síðustu stundu hverju ég klæðist enda klæði ég mig oftast eftir skapi.  Er ekkert að hafa of miklar áhyggjur af þessu.  Góða helgi og hafið það sem allra best. :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 16:13:18 / ippa

Blogg á "báðum stöðum"

Mér líður stundum eins og ég sé að "halda framhjá" blog centralnum.  Eins og hann leggur sig. Ég byrjaði með blogsíðu hér en datt svo inn á moggabloggið og viti menn.  Það líður mér svo ljómandi vel (líka) og blogga þar af kappi.  Það er samt fínt að "koma heim" milli "ástarævintýra" og hvíla sig á öllu saman.  Sá að "Vélstýran" er einnig með tvö blog, hér og þar, þannig að ég er ekki ein um þetta "framhjáhald".  Annasr er ég aðallega að blogga ljóðin mín (ef mig skyldi kalla) á moggablogginu svo þið kannski missið ekkert af svo miklu?:^)
Ætla nú samt að reyna að skella hér inn lítilræði af orðum annað slagið.  Svona upp á gamlan "hjúskap"......................

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 22:48:57 / ippa

Karlotta var dásamleg

Vefurinn hennar Karlottu er dásamleg mynd með þann fallega boðskap að vinátta er það sem skiptir máli og gerir jafnvel ófrínilegustu skepnur fallegar.  Vináttan er sterkt band sem bindur saman ólíkustu karaktera og gerir lífið þessi virði að lifa því og dauðann þess virði að deyja.Þegar tíminn er kominn.  Strákarnir frá eins árs og upp í þriggja sátu og gleymdu sér gersamlega yfir myndinni. Sá minnsti sofnaði að vísu en það gerir afi hans líka í tíma og ótíma yfir hinum og þessum atburðum. Í bíó, leikhúsi, á tónleikum-nefndu það.  Við Solla systir notuðum tissjúið sem var að vísu ætlað öðrum en....það var bara svo sorglegt þegar Karlotta dó eftir allt sem hún gerði í góðsemi sinni.:cry:

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 23:14:04 / ippa

Vetur

Loksins kominn vetur. Bylur og læti en samt ...... Tók fram dreifbýlistútturnar í gær og hef verið á þeim síðan.  Þ.e.a.s. utan dyra. Ætlum að fara að sjá Veröldin hennar Karlottu um helgina.  Með alla þá stráka og stelpur sem koma því við.  Fjóra sonarsyni o.s.frv.  Hlakka til og góða helgi.:D

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3